Vísindin, samlegðin og áhrifin á heilsu og vellíðan
Hrafn Ágústsson· Level 10 · level10.is
Áður en við byrjum
Hvernig líður þér núna?
Gefðu líðaninni einkunn frá 1 upp í 10. Mundu töluna, við spyrjum aftur yfir sjeiknum.
Laugardagsæfingin
Ein klukkustund, fimm hlutar
1 · Brekkan · Hreyfing
Hratt upp, rólega niður, 5 sinnum
Hjartsláttur, gangandiHlaupið uppÞjálfunarsvæðið
Brekkan okkar · 100 m
Lotuþjálfun bætir þolið hraðar en jöfn ganga. Púlsinn fer upp, hjartað styrkist, svo jöfnum við okkur.
Þol er einn sterkasti mælikvarðinn á langlífi. Lélegt þol tengist allt að 5× meiri dánaráhættu en mjög gott þol. Mandsager o.fl., 2018
Niður brekkuna vinna vöðvarnir líka: þeir bremsa. Það bætti blóðsykurstjórn, og ganga upp lækkaði blóðfitu. Drexel o.fl., 2004
Talprófið: upp = örfá orð í einu. Niður = spjall.
2 · Styrkur · Hreyfing
5 æfingar · 1 mínúta hver · eins hratt og djúpt og þú getur
Af hverju „eins djúpt og hratt og hægt er“? Vöðvar stækka þegar þeir eru keyrðir nálægt þreytumörkum, óháð aldri. Hvert og eitt á sínu stigi.
1:00
Vísindin · Hreyfing
Vöðvar eru lífeyrissjóðurinn þinn
Eftir fertugt töpum við um 1% af vöðvamassa á ári, ef ekkert er gert. Eftir sextugt hraðar.
Vöðvar sem vinna eru lyfjaverksmiðja. Þeir senda frá sér boðefni (mýókín) sem draga úr bólgum og styðja heilann.
Vöðvar sem vinna taka upp blóðsykur án þess að þurfa insúlín.
30–60 mín af styrk á viku tengjast 10–20% minni dánaráhættu. Momma o.fl., 2022
Djúpkafað · Hreyfing
Veggsetan: besta æfingin fyrir blóðþrýstinginn
Lækkun á efri mörkum blóðþrýstings (mmHg) eftir tegund æfinga · 270 rannsóknir, 15.827 manns
Kyrrstaða (veggseta)
−8,2 mmHg
Þol + styrkur saman
−6,0 mmHg
Styrktaræfingar
−4,6 mmHg
Þolæfingar
−4,5 mmHg
Lotuþjálfun
−4,1 mmHg
Edwards o.fl., British Journal of Sports Medicine 2023
Hvað þýða 10 mmHg?
−20%
færri hjartaáföll og heilablóðföll fyrir hver 10 mmHg sem blóðþrýstingurinn lækkar. Ettehad o.fl., Lancet 2016
4 × 2Í rannsóknunum: 4 lotur af 2 mín veggsetu, 3 sinnum í viku. Fín heimavenja!
Ef þú ert með háþrýsting eða tekur lyf, ræddu breytingar við lækninn þinn.
Djúpkafað · Hreyfing · Næring
Vöðvarnir eru sykurgeymslan þín
Um 80% af sykrinum sem insúlínið hjálpar úr blóðinu fer inn í vöðvana. Meiri vöðvar = stærri geymsla.
Vöðvar sem vinna opna „sykurdyrnar“ sjálfir, án insúlíns. Þess vegna lækkar hreyfing blóðsykurinn strax.
Aðeins 2–5 mín göngutúr eftir mat lækkaði blóðsykurstoppinn miðað við að sitja. Buffey o.fl., 2022
Brekka + styrkur saman: aðeins sá hópur sem gerði hvort tveggja lækkaði langtímablóðsykurinn (HbA1c). Church o.fl., JAMA 2010
3 · Öndun 1 af 3 · Hugarfar
Kassaöndun 4–4–4–4
Tilbúin/n?4
Anda inn í 4 · halda í 4 · anda út í 4 · halda í 4. Fjórar umferðir eru rúm mínúta.
Hæg, stýrð öndun virkjar flökkutaugina (vagus) og róar taugakerfið: hjartslátturinn hægir á sér og streitan minnkar.
5 mínútur af öndunaræfingum á dag bættu skapið meira en jafnlöng hugleiðsla. Balban o.fl., Stanford 2023
Aðferð sem hermenn og íþróttafólk nota til að halda ró undir álagi. Virkar líka í umferðinni.
3 · Öndun 2 af 3 · Hugarfar
Græðandi borðtenniskúlan
Anda djúpt um nefið
Djúp öndun um nefið. Kúlan ferðast frá stórutá vinstri fótar, um allan líkamann og endar í stórutá hægri fótar. Hún græðir allt sem hún snertir.
Neföndun hægir á önduninni. Nefið hitar, hreinsar og rakar loftið og myndar nituroxíð sem víkkar æðarnar.
Athygli á líkamann (líkamsskönnun) róar hugann og þjálfar okkur í að taka eftir því hvernig okkur líður. Hún getur líka bætt svefn.
Ímyndunaraflið er öflugt tól: heilinn bregst við myndum sem við sköpum, alveg eins og íþróttafólk notar.
3 · Öndun 3 af 3 · Hugarfar
Hönd á hjarta, horft til himins, stórt bros
Fylltu hjartað af þakklæti í eina mínútu.
Þakklæti: fólk sem skrifaði reglulega niður það sem það var þakklátt fyrir var bjartsýnna, hreyfði sig meira og fann fyrir færri líkamlegum einkennum. Emmons & McCullough, 2003
Hlý snerting, líka okkar eigin hönd á hjartað, dró úr streituhormóninu kortisóli. Dreisoerner o.fl., 2021
Brosið hefur lítil en raunveruleg áhrif á líðanina, og það smitar allan hópinn.
Lokin: faðmaðu þig og segðu
„Takk, ____, fyrir æfinguna í dag.“
Að tala við sig með eigin nafni gefur fjarlægð og ró, og gerir okkur mildari við okkur sjálf. Kross o.fl., 2014
Djúpkafað · Hugarfar · Samfélag
Fimm mínútur sem breyta líkamanum
Og þetta byrjar allt á faðmlagi þegar við mætum. Það er ekki bara kurteisi, það er heilsa.
Djúpkafað · Hugarfar · Hreyfing
Hreyfing stækkar minnisstöð heilans
Breyting á stærð drekans (minnisstöðvarinnar) eftir 1 ár · 120 manns, 55–80 ára
Rösk ganga 3× í viku
+2,1%
Bara teygjur
−1,4%
Gangan snéri við 1–2 ára aldurstengdri rýrnun og bætti minnið. Erickson o.fl., PNAS 2011
BDNF„Áburður heilans“: hreyfing eykur þetta boðefni sem lætur heilafrumur vaxa og tengjast.
Og skapið?
Hreyfing dró úr þunglyndi í samantekt á 218 rannsóknum. Ganga, styrkur og jóga virkuðu best, og meiri ákefð gaf meira. Noetel o.fl., BMJ 2024
Öndunin róar taugakerfið á mínútu.
Þakklætið beinir athyglinni að því góða.
Hópurinn gefur oxýtósín og hlátur.
Fjórar leiðir að betra skapi, á einum klukkutíma.
4 · Endurheimt · Næring
Teygjur og Rebuild Strength sjeik
Teygjur
Halda liðleika og hreyfigetu með aldrinum, svo við getum áfram reimað skóna og litið um öxl.
Róa líkamann niður og hjálpa taugakerfinu að skipta yfir í hvíld.
Sjeikinn eftir æfingu
25 g prótein: mysuprótein (hratt) + kasein (hægt). Vöðvarnir fá næringu strax og lengi á eftir.
Viðbættar BCAA: leusín, ísóleusín og valín. Leusín er „kveikjarinn“ sem ræsir vöðvauppbygginguna, og með aldrinum þarf meira af því.
Kolvetni fylla á orkubirgðirnar. Best innan 30 mín eftir æfingu, og þess vegna förum við beint inn í sjeikinn.
5 · Spjall saman · Samfélag
Saman er auðveldara, og hollara
Sterk félagsleg tengsl auka líkurnar á lengra lífi um 50%, á pari við að reykja ekki.
Holt-Lunstad o.fl., 2010 · 148 rannsóknir, 300.000 manns
Ræðarar sem réru í takt þoldu meiri sársauka en þeir sem réru einir, merki um meira endorfín. Cohen o.fl., 2010
Hlátur, faðmlag og spjall hækka oxýtósín og serótónín og lækka kortisól.
Úti í náttúrunni: aðeins 5 mínútur af útihreyfingu bættu skap og sjálfsmynd. Barton & Pretty, 2010
Samlegðin
1 + 1 + 1 + 1 > 4
Hver hluti styrkir hina. Kveiktu á hlutunum einum af öðrum og sjáðu hvernig heildin vex.
Myndræn útskýring byggð á rannsóknunum í kynningunni, ekki mæling.
Samlegðin · Rannsóknirnar
Saman gera þær meira en hver í sínu lagi
Minni dánaráhætta · 480.000 manns
Bara styrkur
−11%
Bara þol
−29%
Bæði saman
−40%
Zhao o.fl., BMJ 2020
Brekkan + styrkurinn = það sem við gerum á laugardögum.
Þol + styrkur → blóðsykur
Aðeins hópurinn sem gerði hvort tveggja lækkaði langtímablóðsykurinn. Church o.fl., JAMA 2010
Styrkur + prótein → vöðvar
Prótein með styrktaræfingum gaf meiri vöðva og styrk en æfingarnar einar. Þess vegna sjeikinn. Morton o.fl., 2018 · 49 rannsóknir
5 venjur saman → lengra líf
Fólk með 5 heilbrigðar lífsvenjur lifði 12–14 árum lengur en fólk með enga. Li o.fl., Circulation 2018
Samlegðin · Keðjuverkunin
Góði hringurinn
Samfélagiðheldur hringnum gangandi
Skref 1 af 6
Áhrifin á heilsu og vellíðan
Það sem rannsóknirnar segja
Þol
13%
minni dánaráhætta fyrir hvert þrep sem þolið batnar (1 MET)
Kodama o.fl., 2009
Styrkur
10–20%
minni dánaráhætta með 30–60 mín af styrktaræfingum á viku
Momma o.fl., 2022
Samfélag
50%
meiri líkur á lengra lífi með sterk félagsleg tengsl
Holt-Lunstad o.fl., 2010
Og það sem við finnum strax
Og þegar markmiðið næst, hringjum við bjöllunni!
Meiri orkaMinni streitaBetra skapBetri svefnJafnari blóðsykurSterkari beinBetra jafnvægiFleiri vinir
Ef þú ert að glíma við alvarlegar heilsuáskoranir er mikilvægt að gera lífsstílsbreytinguna í samráði við lækni.
Árangurinn · Alvöru fólk í klúbbnum
Þetta er það sem samlegðin gerir
Millý−22 kgHalldóra Helga−12 kgmeð Helgu, leiðbeinandaAnna Guðný−40 kgrekur nú sinn eigin heilsuklúbb á AkureyriValdísfagnar árangri með hópnum
Frá árangri til leiðbeinanda. Anna Guðný rekur nú sinn eigin heilsuklúbb og Helga er orðin leiðbeinandi. Næsti leiðbeinandi gæti verið þú.
Level 10
Einn laugardagur, allar fjórar stoðirnar
Hreyfing
Brekkan og styrkurinn
Hjarta, þol, vöðvar og bein.
Hugarfar
Öndun, kúlan og þakklæti
Ró, einbeiting og mildi við okkur sjálf.
Næring
Rebuild Strength sjeikinn
Prótein til að vöðvarnir nýti æfinguna.
Samfélag
Spjallið og hópurinn
Ástæðan fyrir því að við mætum aftur.
Í leiknum
Merktu við í dag
Æfingin í dag telur í Level 10 leiknum. Liðið þitt sér hana og hver venja færir þig nær markmiðinu.
Allt saman · 3 sinnum í viku
Hvað gerist ef við mætum 3× í viku?
≈ 45 mín lotuþjálfun≈ 20 mín styrkur≈ 10 mín öndun3 faðmlög og 3 sjeikará viku · mán og fim kl. 18, lau kl. 11
Förum út!
3× í vikuMán kl. 18Fim kl. 18Lau kl. 11
1Mundu einkunnina þína. Við spyrjum aftur yfir sjeiknum.
2Taktu vin með næsta laugardag: 2 fyrir 1 á klúbbkortinu.
3Langar þig að leiða æfingu eins og þessa? Talaðu við mig, við þjálfum nýja leiðbeinendur.