Level 10
Level 10 Laugardagur í Level 10 · Næring & Hugarfar

Geta bætiefni hægt á öldrun heilans?

Fimm efni sem lofa góðu, og hvað vísindin segja í raun

Hrafn Ágústsson · Level 10 · level10.is

Kynning í Level 10 klúbbnum
Level 10
Áður en við byrjum

Hefur þú gengið inn í herbergi og gleymt af hverju?

Getur pilla eða duft hægt á öldrun heilans?

Réttu upp hönd. Við spyrjum aftur í lokin.

Glaður Level 10 hópur í klúbbnum
Level 10
Áður en við tölum um bætiefni

Bætiefni bæta við. Þau koma ekki í staðinn.

45%
heilabilunartilfella tengjast 14 þáttum sem við getum haft áhrif á
Lancet-nefndin um heilabilun, 2024
HREYFING

Hreyfing

Eykur blóðflæði og BDNF, „áburð“ fyrir heilafrumurnar.

HUGARFAR

Svefn

Í djúpsvefni hreinsar heilinn út úrgangsefni dagsins.

NÆRING

Blóðsykur

Stöðugur blóðsykur verndar æðarnar og heilann.

SAMFÉLAG

Fólkið okkar

Einmanaleiki er einn af áhættuþáttunum. Samvera verndar.

Level 10
Skál í sjeik eftir útiæfingu
EFNI 1 AF 5NÆRING

Omega-3 (EPA og DHA)

  • Byggingarefni heilans. DHA er hluti af himnum heilafrumna.
  • Slekkur á bólgu. Hjálpar líkamanum að ljúka bólguviðbragði.
  • Skammturinn skiptir máli. Venjulegt lýsi og fiskolía gefa lítið EPA og DHA. Skoðaðu magnið á miðanum.
−49%
minni hætta á Alzheimer hjá þeim sem höfðu mest DHA í blóðinu
Framingham-rannsóknin · 1.490 manns · Sala-Vila o.fl., 2022
Fyrirvari: þetta er fylgni, ekki sönnun. Sumar stórar tilraunir sýna lítil sem engin áhrif hjá fólki sem fær nóg af omega-3 fyrir.
Level 10
Spjall yfir sjeik í klúbbnum
EFNI 2 AF 5NÆRING

Fjölvítamín

  • Þrjár slembirannsóknir. COSMOS: yfir 5.000 manns 60 ára og eldri.
  • Daglegt fjölvítamín eða lyfleysa, í 2–3 ár.
  • Dæmi: Tveir 70 ára vinir. Eftir 3 ár eru báðir 73, en sá sem tók fjölvítamín stendur sig á prófunum eins og 71 árs.
≈ 2 ár
yngri heili á prófum. Báðir hópar eldust, en fjölvítamínhópurinn hægar
COSMOS · samantekt þriggja rannsókna · Vyas o.fl., 2024
Fyrirvari: áhrifin eru hófleg og mest hjá þeim sem borða ekki fjölbreytt. Fjölvítamín bætir upp eyður, það gerir ekki kraftaverk.
Level 10
Level 10 hópurinn horfir til himins í sólinni
EFNI 3 AF 5NÆRING

D-vítamín

  • Á Íslandi myndar húðin nær ekkert D-vítamín frá október til mars.
  • Lágt D-vítamín tengist 50–80% meiri hættu á heilabilun.
  • Lýsið hennar ömmu var D-vítamín í myrkrinu. Íslensk hefð með góða ástæðu.
−40%
færri heilabilunargreiningar á 10 árum hjá þeim sem tóku D-vítamín
12.388 manns · Ghahremani o.fl., 2023
Fyrirvari: fylgnirannsókn. Fólk sem tekur D-vítamín lifir oft heilbrigðara lífi almennt. Ræddu blóðprufu við lækninn.
Level 10
Level 10 hópurinn í styrktaræfingu
EFNI 4 AF 5HREYFING

Kreatín

  • Orka fyrir frumurnar, bæði í vöðvum og heila.
  • Lítil tilraun: 20 manns með Alzheimer tóku 20 g á dag í 8 vikur.
  • Tvöfaldur ávinningur fyrir okkur 40+: vöðvar og heili.

Við erum með Creatine+ frá Herbalife í klúbbnum.

+11%
meira kreatín í heilanum, og betri árangur á nokkrum hugrænum prófum
Forrannsókn · Smith o.fl., 2025
Fyrirvari: lofar góðu en er forrannsókn, án samanburðarhóps. 20 g er rannsóknarskammtur. Algengur dagskammtur er 3–5 g.
Level 10
Kafli · Kreatín nánar · 1 af 4

Meira en vöðvar

Það sem Paul Saladino læknir telur vel rannsakað, og skammtarnir sem notaðir voru

Styrkur og vöðvar

Meiri styrkur og snerpa, 1–2 kg meiri vöðvamassi, hraðari endurheimt.

5 g+ á dag

Svefnleysi

Skarpari hugsun eftir slæma nótt.

20–25 g á dag

Alzheimer

Betri árangur á hugrænum prófum.

20 g á dag

Höfuðhögg

Bætt hugsun eftir heilahristing.

25 g+ á dag

Frjósemi karla

Fleiri sáðfrumur.

5 g+ á dag

Háu skammtarnir (20–25 g) eru rannsóknarskammtar. Venjulegur dagskammtur er 3–5 g.

Level 10
Kafli · Kreatín nánar · 2 af 4

Hvað er verið að rannsaka?

Level 10 hópurinn úti í sólinni

Á rannsóknarstigi, lofar góðu en ekki staðfest:

ÞreytaÞunglyndiHjartabilunSlitgigtVefjagigtLungnateppa (COPD)Öldrun húðarKrabbamein (dýrarannsóknir)

Hverjir græða mest?

  • Konur. Hafa oft minni náttúrulegar kreatínbirgðir, og áhrifin eru oft meiri.
  • Þau sem borða lítið kjöt. Kreatín kemur aðallega úr kjöti og fiski.
  • Við 40+. Styður vöðvana á meðan þeir eru á undanhaldi.
Level 10
Kafli · Kreatín nánar · 3 af 4

Mýta eða staðreynd?

Level 10
Kafli · Kreatín nánar · 4 af 4

Svona tökum við kreatín

3–5 g
kreatín á dag, það sem rannsóknir nota oftast

Til að fá 5 g úr mat þyrftum við að borða um 1 kg af rauðu kjöti á dag.

  • Einhýdrat (monohydrate) er best rannsakaða formið.
  • Á hverjum degi, hvenær sem er. Til dæmis í morgunsjeikinn.
  • Magaónot? Leystu það upp í volgu vatni.
  • Veldu vottaða vöru sem óháður aðili hefur prófað.
Creatine+ blandað í vatnsglas
Creatine+ í klúbbnum

2 skeiðar (3,8 g) = 3 g kreatín, auk B-vítamína og kalks. Prófað af Informed-Sport.

Ef þú ert að glíma við alvarlegar heilsuáskoranir er mikilvægt að gera lífsstílsbreytinguna í samráði við lækni.

Level 10
Efni 5 af 5 · Nýjustu rannsóknirnar

Ketónar: varaeldsneyti fyrir heilann

EFNI 5 AF 5 · NÆRING

Hvað eru ketónar?

  • Annað eldsneyti sem heilinn getur notað í stað sykurs.
  • Með aldrinum og insúlínviðnámi nýtir heilinn sykur verr.
  • Rannsakað hjá fólki með væga vitræna skerðingu, enn á byrjunarreit.
SÚPER-START

Hvernig fáum við ketóna?

  • Næturfasta. Ekkert að borða 3 klst. fyrir svefn.
  • Hreyfing á morgnana, eins og brekkan okkar.
  • MCT-olía er líka rannsökuð, en byrjaðu á grunninum.
Level 10
Gagnrýnin hugsun

Hversu sterk er sönnunin?

SnemmaEfnilegtSterkara

Smelltu á efni. Ekkert þeirra er sannað að komi í veg fyrir heilabilun.

Level 10
Hagnýtt · Í röð mikilvægis

Heilavernd í Level 10

1

Hreyfing

Útiæfing 3× í viku og ein styrktaræfing. Byrjum eftir 5 mínútur.

2

Svefn

7–8 klst. 3-2-1 reglan: matur, vinna, skjár.

3

Blóðsykur

4 próteinmáltíðir og næturfasta eftir kvöldmat.

4

Samfélag

Mæta, hlæja, faðmast. Einmanaleiki er áhættuþáttur.

5

Grunnbætiefni

Omega-3, D-vítamín, fjölvítamín og kreatín. Sjá næstu glæru.

Í byrjun svaraðir þú: ekkert enn Hefur svarið þitt breyst?

Ef þú ert að glíma við alvarlegar heilsuáskoranir er mikilvægt að gera lífsstílsbreytinguna í samráði við lækni.

Level 10
Hagnýtt · Í klúbbnum

Bætiefnin sem við notum

Herbalifeline Max
Omega-3

Herbalifeline Max

Þétt EPA og DHA úr fiskolíu, vottuð af Friend of the Sea.

2 hylki á dag
Formula 2 fyrir karlaFormula 2 fyrir konur
Fjölvítamín

Formula 2

Vítamín og steinefni, sérsniðin fyrir karla og fyrir konur.

Samkvæmt miðanum
Herbalife24 Creatine+
Kreatín

Creatine+

3 g kreatín, B-vítamín og kalk. Prófað af Informed-Sport.

2 skeiðar á dag
Active Mind Complex
Heilinn

Active Mind Complex

Neumentix úr myntu, auk B- og C-vítamína. Í rannsókn bætti sami skammtur vinnsluminni um 15% á 90 dögum.

90 manns 50–70 ára · Herrlinger o.fl., 20182 hylki á dag með mat

Bætiefni bæta við grunninn: hreyfingu, svefn, næringu og samfélag. Ef þú tekur lyf eða ert að glíma við alvarlegar heilsuáskoranir, ræddu við lækni.

Level 10
Ný rannsókn · Úrið á úlnliðnum

Skrefin og hjartað segja til um hraða öldrunar

Level 10 hópurinn á göngu
< 5.000

skref á dag tengdust hraðari öldrun: yfir 14 mánuðir á hverjum 12 mánuðum

> 80

slög á mínútu í hvíld tengdust líka hraðari öldrun

621 manns 50–79 ára með snjallúr · Öldrunarhraði mældur í DNA · Digital Health Innovation, 2026

Prófaðu sjálf/ur

0dagar á ári, miðað við 5.000 skref og 70 slög

Hver 3.000 skref til viðbótar ≈ 11 dögum hægari öldrun á ári, og hvert 10 slögum lægri púls ≈ 11 dögum til viðbótar. Áætlun út frá fylgni, ekki loforð.

Level 10
Level 10

Besta heilabætiefnið er ókeypis.

Hreyfing, súrefni og gott fólk. Ertu tilbúin/n? Förum út saman.

Út í brekkuna →

4-1 Heilsuáskorunin · Taktu vin með, 2 fyrir 1 · level10.is

Level 10 hópurinn saman úti
1 / 17